Unnið að vegagerð inn í Haukafelli
Undanfarið hefur verið unnið að uppbyggingu vegar inn að skógræktarsvæðinu í Haukafelli á Mýrum. Skógræktarfélag Austur- Skaftafellssýslu hefur í fyrra og á þessu ári fengið styrki frá Vegagerðinni til þessara framkvæmda og vonast Rannveig Einarsdóttir svæðisstjóri hjá Suðurlandsskógum til að hægt verði að ljúka vegaframkvæmdum inn í Haukafell á næsta ári svo fært verði öllum bílum þangað. Lokið er smíði og frágangi á sumarhúsinu sem flutt var í Haukafell í sumar nema smávegis lagfæringum við húsið að utan. Sigurður Karlsson setti húsið saman og hefur unnið í sínum frístundum í sumar við að fullgera það, gert það alveg meiriháttar flott segir Rannveig. Ekki hefur verið gróðursett neitt í Haukafelli í sumar en á öllu svæðinu hér hafa verið settar niður um 50-60 þúsund plöntur og talsvert er eftir að gróðursetja í haust. Mjög góður vöxtur hefur verið í öllum trjágróðri og ræktun gengið vel.
Undanfarið hefur mikið verið af grasmaðki eða jarðyglu á tveim skógræktarstöðum í Nesjum. Maðkarnir naga trén, byrja á grenitrjánum og klára barrið á þeim, fara svo í birkið og bara hvað sem er. Rannveig segir að maðkarnir séu stórir 2 -3 cm. langir, feitir og pattaralegir. Ekki hefur hún orðið vör við þá á fleiri stöðum og telur ekki að þeir drepi trjágróðurinn en dragi úr vexti hans. Ekki eru gerðar neinar ráðstafanir til að útrýma maðkinum, hann drepst með haustinu en svona plágur koma upp öðru hverju með einhverra ára millibili.





Skrifa athugasemd