September
Berjaferð Nesjaskólabarna
Nemendur Nesjaskóla fóru í berjaferðina sína í dag, mánudag. Berjaferð er einn hluti af vettvangsferðum Nesjaskóla sem m.a. hafa það að markmiði að kynna fyrir nemendum sitt nánasta umhverfi og hvetja til útivistar og hollrar hreyfingar. Fyrirhugað var að fara ferðina fyrir helgi en sökum mikillar vætu var ferðinni frestað. Farið var inn á Heinabergsaura og tíndu krakkarnir þar heilmikið af krækiberjum í blíðskaparveðri.
Þau komu svo í skólann berjablá og sæl og luku skóladeginum sínum á hefðbundinn hátt.





Skrifa athugasemd