September
Hrogn og lifur hreinsuð
Hrogn og lifur hreinsuð (úr myndasafni)
Hrogn og lifur hreinsuð (úr myndasafni)

14.09.2004 September

Atvinnulausum fækkar í sveitarfélaginu

Atvinnuástand á Hornafirði er mjög gott og atvinnuleysisskráin hefur minnkað verulega mikið segir Hjördís Þóra Sigþórsdóttir formaður Vökuls Stéttarfélags. Síðastliðinn föstudag voru 14 manns, 9 konur og 5 karlar, skráðir atvinnulausir og vonir standa til að þessi tala lækki enn frekar næstu daga. Fiskvinnslur á staðnum hafa undanfarið ítrekað auglýst eftir fólki til starfa án teljanlegs árangurs. Hjördís telur ekki að ástæða sé að ætla að þeir sem eru á atvinnuleysisskránni vilji ekki fara í fiskvinnslu heldur sé þetta fólk sem ekki geti eða megi vera í fiski. Hjördís segir að ef fólk á atvinnuleysisbótum hafnar vinnu sem því býðst eru málefni viðkomandi tekin fyrir á fundi hjá úthlutunarnefnd og ef í ljós kemur að ekki er haldbær ástæða fyrir því er sá einstaklingur sviptur atvinnuleysisbótum í tvo mánuði.

Talsmenn fiskvinnslufyrirtækjanna sem auglýst hafa eftir fólki segjast ekki leita til Vökuls Stéttarfélags eftir fólki þar sem ekki fáist uppgefin nöfn þeirra sem þar eru skráðir, en það samkvæmt gildandi samningum er ekki leyfilegt að gefa upp nöfn af atvinnuleysisskrá. Undanfarið hefur verið auglýst eftir fólki í ýmis störf á Höfn og ljóst að marga vantar til starfa.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica