September
heilso3
Heilbrigðisstofnun Suðausturlands
HSSA við Víkurbraut

17.09.2004 September

Bjóða því uppá viðtals- og fræðslutíma fyrir ungt fólk

Hjúkrunarfræðingar á Heilsugæslustöðinni á Hornafirði ætla að verða með opna móttöku fyrir ungt fólk á aldrinum 14-20 ára og bjóða því uppá viðtals og fræðslutíma á heilsugæslustöðinni. Þessi opna móttaka verður einu sinni í viku, á mánudögum frá kl.16.30 til 18.00 og verður fyrsti tíminn 20. september. Þessi þjónusta er fólki að kostnaðarlausu og tímapantanir óþarfar, bara kíkja við vilji viðkomandi vita meira um t.d. kynþroskann, kynsjúkdóma, getnaðarvarnir, þunglyndi, kvíða, offitu og margt fleira. Áslaug Valsdóttir ljósmóðir er ein þeirra sem að þessu framtaki standa segir að víða á heilsugæslustöðvum í Reykjavík sé boðið upp á þessa þjónustu og á einhverjum stöðum á landsbyggðinni. Okkur hér fannst tími til kominn að við gerðum þetta líka og það hefur tekið okkur ár að undirbúa þetta og ýta því af stað segir Áslaug.

Unglingar eru margir hverjir ekki nógu duglegir að leita sér upplýsinga eða aðstoðar með ýmis mál sem stuðla að heilbrigði. Nú bjóðum við þessum hóp ókeypis tíma hjá heilsugæslunni og það þarf ekki að panta tíma og ekki að skrá nafnið sitt, bara að koma og hitta eitthvert okkar hér segir Áslaug. Það þarf ekki að vera neitt að, þetta er líka fræðsla og getur varðað allt mögulegt. ekki er víst að við ráðum við allt en þá reynum við að leiðbeina þeim áfram um hvert skuli helst leita. Áslaug segir að þó þessi aldurstakmörk séu tiltekin erum við ekki gallhörð á þeim ef því er að skipta.
Með Áslaugu í móttökunni eru Jóhanna Kristjánsdóttir hjúkrunarfræðingur, Ásgerður Gylfadóttir og svo eru læknar heilsugæslustöðvarinnar einnig til taks.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica