September
Krakkablak
Krakkablak
Krakkablak

17.09.2004 September

Krakkablak, ný íþróttagrein á Hornafirði

Blakdeild Sindra

Mikilvægi þess að stunda holla og góða hreyfingu verður seint ofmetið. Fjölbreytt framboð íþróttagreina er mikilvægt til að auka líkurnar á að fleiri finni íþróttagrein við sitt hæfi. Því er því ánægjulegt að geta sagt frá því að nú eru að hefjast æfingar á nýrri íþróttagrein hér á Hornafirði. Þessi nýja grein er blaklíkur leikur sem nefnist krakkablak (Kidsvolley). Hér er á ferðinni byltingarkennd aðferð við að kenna blak í yngstu aldurshópunum og einnig eldri byrjendum. Hingað til hefur verið talið vonlítið að byrja að kenna krökkum blak fyrr en við 10-12 ára aldurinn vegna þess hversu tæknilega erfið íþróttin er.

Leikurinn er skemmtilegur, í honum er mikil hreyfing og fjör. Það skemmtilegasta er samt það, að það skiptir engu máli hvort iðkandinn ert nýbyrjaður að æfa eða hefur æft lengi, allir geta spilað krakkablak á fyrstu æfingu. Krakkablak er leikur sem tekur mið af hreyfifærni leikmanna og þróun í getu því að erfileikagráða tækniæfinga fer stighækkandi. Haldin eru Íslandsmót í krakkablaki og vonandi verður þess skammt að bíða að Sindri verði með lið þar. Blakæfingarnar verða í íþróttahúsinu á Höfn á þriðjudögum. Boðið verður upp á æfingar fyrir þrjú aldursstig:

  • 6-8 ára, sem eiga tíma kl. 18:00
  • 9-12 ára, sem eiga tíma kl. 18:50
  • 13-16 ára, sem eiga tíma kl. 19:40

Þjálfari hefur verið ráðin Hulda Laxdal Hauksdóttir en hún er með íþróttakennarapróf og BS-gráðu í heilsuþjálfun. Blakdeild Sindra vonast til að hornfirskir krakkar taki þessum nýja valkosti vel og fjölmenni til þátttöku. Fyrstu tveir æfingatímarnir verða ókeypis.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica