Flikk heldur upp á 5 ára afmæli
Hársnyrtistofan Flikk heldur upp á fimm ára afmæli sitt þessa dagana. Birna Sóley Sigurðardóttir hársnyrtimeistari og förðunarfræðingur er eigandi Flikk. Nokkru eftir heimkomuna að loknu námi í Reykjavík hófst hún og Egill Benediktsson eiginmaður hennar, handa við að byggja bílskúrinn upp og innrétta hann fyrir hársnyrtistofu. Ég ákvað í upphafi að byggja þetta allt almennilega upp strax og einnig að bjóða upp á ýmsar vörur aðrar en hársnyrtivörur svo sem ilmvötn, handtöskur, ekta skartgripi, förðunarvörur og ýmislegt fleira segir Birna Sóley. Þetta eru góðar vörur fyrir konur og karla á öllum aldri og það er ekkert kynslóðabil hjá okkur hér. Ég hef verið ein að vinna á stofunni þar til í fyrra að ég tók nema í hársnyrtingu.
Það er alltaf fullt að gera á hársnyrti- og förðunarstofunni og lítið hefur verið um sumarfrí þó hefur Birna Sóley farið tvisvar í vikufrí í sumar og það finnst henni bara mikið frí. Hún segir að aldrei hafi annað komið til greina hjá henni en setjast að hér heima og opna eigin stofu, "þetta var gamall draumur hjá mér". Birna Sóley hefur tekið þátt í keppnum í hárgreiðslu og fimm sinnum orðið Íslandsmeistari og unnið marga verðlaunapeninga. Þetta er búið að vera alveg frábær tími og ég er mjög ánægð með aðstöðuna mína hér, viðskiptavinina og allt segir Birna Sóley.





Skrifa athugasemd