Gat í gegnum Almannaskarð eftir 8 daga?
Það er ljóst að framkvæmdin við göng undir Almannaskarð hefur gengið mjög vel og miklu betur heldur en bjartsýnustu menn þorðu að vona. Upphaflega gerði verktakinn ráð fyrir að gangagreftri lyki um miðjan febrúar á næsta ári. Síðan var þeirri áætlun breytt og gert ráð fyrir að komið væri í gegn um miðjan nóvember nk. Nú er útlit fyrir að gangasprengingum ljúki í lok næstu viku sem þýðir að framkvæmdaraðilarnir Leonhard Nilsen og Sönner frá Noregi og Hérðasverk ehf eru nokkrum mánuðum á undan upphaflegri verkáætlun. Aðeins á eftir að bora og sprengja um 48 metra sem er aðeins um 4,0% af lengd gangana sem verða alls 1.150 metrar að lengd í bergi. Það jafngildir vegalengdinni að keyrt sé frá Ráðhúsinu eftir Hafnarbrautinni inn að Mjólkurstöð.
Við framkvæmdina starfa nú tæplega 40 manns fyrir utan þá norðmenn sem eru heima í fríi. Við gangagerðina er unnið á tveimur 10 klst. vöktum og er hlé oftast á milli tvö og sex á nóttinni.
Reiknað er með að "gegnumbrot" eins og það er kallað á gangagerðarmáli verði 8. október n.k. og af því tilefni mun samgöngumálaráðherra, Sturla Böðvarsson væntanlega mæta á staðinn og tendra síðustu sprenginguna. Þegar gat er komið í gegn þá tekur við mikil vinna við endanlegar bergstyrkingar, vatnsklæðningar, frárennsliskerfi, vegagerð og uppsetningu búnaðar í göngin. Gert er ráð fyrir að umferð um göngin verði hleypt á fyrri hluta næsta sumars. Það er GeoTek ehf sér um framkvæmdaeftirlit fyrir Vegagerðina
Með því að velja tenginguna hér að neðan er nægt að skoða framkvæmdarhraðann, klikka á fyrstu myndina og velja "Næsta mynd" og svo framvegis, þá er hægt að sjá framkvæmdarhraðann.





Skrifa athugasemd