Október
Kynningarfundur Suðurlandsskóga og Garðyrkjuskóla ríkisins í Nýheimum @RE
Kynningarfundur Suðurlandsskóga og Garðyrkjuskóla ríkisins í Nýheimum @RE
Kynningarfundur Suðurlandsskóga og Garðyrkjuskóla ríkisins í Nýheimum @RE

01.10.2004 Október

Grænni skógar, nám fyrir skógarbændur

Góð mæting var á kynningarfund Suðurlandsskóga og Garðyrkjuskóla ríkisins í Nýheimum í gær á ,,Grænni skógar? sem er yfirskrift á öflugu skógræktarnámi, ætlað öllum fróðleiksfúsum skógarbændum á Suðurlandi, sem vilja ná hámarksárangri í skógrækt. Á fundinum kynntu Björn Jónsson og Magnús Hlynur skógarbændum fyrirkomulag skógræktarnámsins sem nú gefst kostur á að nema hér heima í héraði. Kennt verður frá Garðyrkjuskóla ríkisins í gegnum fjarfundarbúnaðinn í FAS og farið verður í vettvangsferðir hér á heimaslóðum.

Garðyrkjuskólinn sér um framkvæmd námsins en þeir aðilar sem koma að náminu auk skólans eru Suðurlandsskógar, Skógrækt ríkisins, Landgræðsla ríkisins og Félag skógarbænda á Suðurlandi.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica