Líflegt á markaðstorginu í Hornabæ
Það var líflegt á markaðstorginu í Hornabæ um helgina og sölufólkið lét vel yfir aðsókninni. Að vanda var þar fjölbreyttur varningur til sölu ásamt kaffi og meðlæti. María Gísladóttir sagði að vinsælasta söluborðið hefði verið hjá Finndísi í Dilksnesi. Þar fengust gulrætur, rófur kartöflur, tómatar og agúrkur allt lífrænt ræktað það er grænmeti sem ekki eru notuð nein úðunar eða vaxtabóta efni við ræktunina. Sævar Kristinn og Pálína voru á sínum stað með úrvals kinda- og svínakjöt, lifur og flesk. Það var sem sagt nóg að fara á markaðstorgið í Hornabæ til að kaupa í Hornfirska framleiðslu í helgarmatinn.
María sagði að ekki hefði þótt vænlegt að hafa markaðstorgið opið í sumar en nú er tími þess framundan og óðum styttist til jóla.





Skrifa athugasemd