Október
Hvanney SF-51 komin til heimahafnar
Hvanney SF-51 komin til heimahafnar
Hvanney SF-51 komin til heimahafnar

04.10.2004 Október

Nýr bátur til Skinneyjar-Þinganess

Nýr bátur Skinneyjar-Þinganess, Hvanney SF-51 kom til sinnar heimahafnar seinni partinn í dag. Hann er 357 brúttótonna stálbátur, smíðaður í Kína árið 2001, 28 metrar á lengd og 9 metrar á breidd. Hvanney hét áður Happasæll og var gerður út frá Keflavík en hann er keyptur hingað án aflaheimilda. Átta manna áhöfn verður á bátnum og er Þorsteinn Guðmundsson skipstjóri. Þorsteinn var áður skipstjóri á Erlingi SF-65 og fylgir áhöfnin sem var með honum þar yfir á Hvanney SF, en nýr skipstjóri og áhöfn fara á Erling.

Hvanney kemur hingað frá Hafnarfirði þar sem settur var á hann gálgi og undirstöður undir spil. Nú tekur við að gera bátinn tilbúinn á netaveiðar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica