Göngin mætast á réttum stað
Nú á einungis eftir að sprengja u.þ.b. 4 metra haft í Almannaskarðsgöngunum sem geymt verður til morgundagsins en þá mun Sturla Böðvarsson samgöngumálaráðherra koma og taka þátt í að sprengja síðasta haftið. Búið er að bora í gegn svo ljóst er að göngin að norðan og sunnan mætast á réttum stað. Að sögn eftirlitsaðila með gangagerðinni er allt tilbúið fyrir morgundaginn og að eftirvinna sé hafin í göngunum og allt gangi þetta mjög vel. Þó vel hafi gengið að bora og sprengja og sá hluti verksins sé langt á undan áætlun er óvíst hvort það verði til þess að umferð um göngin hefjist fyrr en áætlað var, þ.e. í júní 2005, vegna mikillar vinnu í göngunum, vegskálum og eins við aðkomu að þeim.
Vegurinn beggja megin við göngin verður ekki tilbúinn fyrr en í vor a.m.k.ekki með bundnu slitlagi.





Skrifa athugasemd