Október
Frá námskeiði slökkviliðsins við eiturefnaslysum
Frá námskeiði slökkviliðsins við eiturefnaslysum

12.10.2004 Október

Varnir og viðbrögð slökkviliðsins við eiturefnaslysum

Um helgina var haldið þriggja daga námskeið fyrir slökkviliðsmenn á Höfn á vegum Brunamálaskólans. Námskeiðið gekk að þessu sinni út á varnir og viðbrögð slökkviliðs við eiturefnaslysum, meðhöndlun og meðferð eiturefna mengun og ýmis önnur vandamál sem slíkum slysum fylgja. Verklegu þættir námskeiðsins fóru fram á Hornafjarðarflugvelli þar sem farið var yfir viðbrögð við ,,eld í flugvélum?. Farið var í fyrirtækið Skinney Þinganes þar sem frystihúsið var skoðað með sérstöku tilliti til frystitækja í sambandi við ammoníak. Við slökkvistöðina voru verklegar æfingar þar sem tækjabúnaður Farskóla Brunamálastofnunar var notaður, en bóklegt nám fór fram í ráðhúsinu. Um kennslu sáu tveir kennarar af Keflavíkurflugvelli ásamt Elísabetu Pálmadóttur skólastjóra Brunamálaskólans. Námskeiðið sóttu 13 slökkviliðsmenn þar af þrír frá Egilsstöðum.

Námskeið þetta er framhald af námskeiði Brunamálaskólans sem haldið var hér á síðasta ári en eiturefnaslys eru nú alfarið verkefni slökkviliðanna í landinu að fást við. Hætta á mengunarslysum þar sem fást þarf við allskonar eiturefni hefur stóraukist þar sem nánast öll slík efni eru nú flutt með bílum um þjóðvegi landsins, óhöpp við fermingu og affermingu eru líka alltaf til staðar. Að sögn Steinþórs Hafsteinssonar slökkviliðsstjóra hefur slökkviliðið ekki þurft að takast á við neitt mengunarslys þar sem eiturefni koma við sögu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica