Vakin athygli á brjóstakrabbameini á Íslandi
Núna í októbermánuði er vakin athygli á brjóstakrabbameini á Íslandi, fimmta árið í röð og er þetta hluti af alþjóðlegu átaki . Frætt er um sjúkdóminn og konur hvattar til að nýta sér boð Leitarstöðvar Krabbameinsfélagsins um röntgenmyndatöku. Krabbameinsdeildin á Hornafirði var endurvakin fyrir tveim árum og er Guðný Jensdóttir formaður deildarinnar. Meðal verkefna deildarinnar er fjáröflun með pennasölu einu sinni á ári og einnig með sölu minningarkorta sem hægt er að fá hjá Guðnýju Jensdóttur, Björgu Svavarsdóttur og Ester Þorvaldsdóttur. Guðný segir að pennasalan hafi gengið frábærlega vel og vill hún koma þakklæti til Hornfirðinga fyrir góðan stuðning og hvað þeir hafi tekið vel á móti sölufólki. Bleiki liturinn er tákn þessa átaks og eru ýmsar merkar byggingar víða um land baðaðar bleikum ljósum þar á meðal Hafnarkirkja. Bleika slaufan verður til sölu í Lóninu og er verð hennar 100 kr. og svo er frjálst framlag.
Eitt af verkefnum deildarinnar er að styðja við bakið á þeim sem þurfa að vera í Reykjavík vegna þessa sjúkdóms. Krabbameinsfélagið á íbúðir sem allir sem greinast með krabbamein hafa rétt á að vera í og deildin greiðir fyrir þá sem hafa farið héðan, segir Guðný.
Árleg krabbameinsleit hér var í byrjun vikunnar og segir Guðný að mæting kvenna í leitina hafi verið mjög góð. Til stendur að efna til fræðslu fyrir almenning, á vegum deildarinnar og verður það auglýst síðar. Ekki er til neitt félagatal fyrir deildina hér og er það eitt af því sem við þurfum að fara að vinna að, segir Guðný, eins ætlum við að fara í að afla velunnara deildarinnar.
Í stjórn Hornafjarðardeildarinnar eru; Guðný Jensdóttir, Ester Þorvaldsdóttir, Eyrún Axelsdóttir, Ólöf Óladóttir, Þorgils Baldursson, Björg Svavarsdóttir og Ragnhildur Magnúsdóttir læknir.





Skrifa athugasemd