Október
Páll Kristjánsson og Sigurður Karlsson að taka stöðuna í tengistöðinni í Hólum
Rarik_Holar_IMG_7308
Páll Kristjánsson og Sigurður Karlsson að taka stöðuna í Tengistöðinni í Hólum
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

19.10.2004 Október

Rafmagn að komast í eðlilegt horf

Rafmagn fór af Höfn og nágrenni um miðjan daginn í gær eftir að Suðurlínan datt út vegna bilunar, en fyrr um morguninn hafði byggðarlínan við Almannaskarð slitnað og því varð Höfn og nágrenni rafmagnslaus. Díselrafstöðin sem er út í Álaugarey var sett í gang seinni partinn í gær og síðar bættist við Smyrlabjargarvirkjun en saman geta þær framleitt um 3400kw. Skömmtun var á rafmagni í nótt og fram eftir morgni en að sögn Páls Kristjánssonar stöðvarstjóra RARIK á Höfn þá eru flestir komnir með rafmagn fyrir utan Suðursveit og Öræfi þar sem er línubilun sem á eftir að gera við. Ekki varð mikil truflun á hitaveitunni sem kynnt var með olíu en undir venjulegum kringumstæðum er hún kynnt með rafmagni.

Línumenn frá RARIK á Egilsstöðum komu að austan í nótt og þurftu þeir að brjótast yfir Breiðdalsheiði og tók ferðin yfir heiðina um 6 klukkustundir. Þeir eru nú að vinna við viðgerð á byggðarlínunni við Almannaskarð og þegar þeirri viðgerð er lokið má reikna með að rafmagn verði komið í eðlilegt horf.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica