Rósaberg gerir hringtorg á hringveginum við Kirkjubæjarklaustur
Í þessari viku verður lokið við gerð hringtorgs á hringveginum við Kirkjubæjarklaustur og er það Rósaberg ehf á Hornafirði sem sér um verkið. Hringtorgið sem er norðaustan við Klaustursskála er tenging að Kirkjubæjarklaustri, hringveginum, Geirlandsvegi og Klausturskála. Tilboð Rósabergs í verkið var 21.690.950 kr. Ekki eru allir vegfarendur á einu máli um ágæti þessara framkvæmdar, sumum finnst ekki passa að setja hringtorg þarna og telja það ónauðsynlega hindrun á hringveginum, öðrum finnst þetta góð framkvæmd sem auki öryggi vegfarenda. Allavega er mannvirkið fallegt og eins og vegfarandi sagði ,, þetta setur menningarlegan svip á staðinn.?
Jón Kjartansson einn eigenda Rósabergs segir að þeir hafi verið með fleiri framkvæmdir á Kirkjubæjarklaustri svo sem jarðvegsvinnu við brúarbygginguna á Skaftá og nokkur smærri verkefni. Ekki eru stór verkefni framundan á næstunni hjá þeim Rósabergsmönnum en nóg að gera í ýmsum smærri framkvæmdum.





Skrifa athugasemd