Útivistargarður við hjúkrunardeild Skjólgarðs vígður
Í sumar hefur verið unnið að gerð útivistargarðs við hjúkrunardeild Skjólgarðs. Garðurinn er gerður þannig að allir sem á hjúkrunarheimilinu dveljast og hafa einhverja fótavist geti notið útiveru í skjólgóðum garðinum. Hönnuður garðsins var Ulla R. Petersen landslagsarkitekt en framkvæmdin var í höndum Blómalands. Allur kostnaður við garðinn var greiddur með peningum úr minningasjóði Skjólgarðs. Í dag þegar minnst var 30 ára afmæli hjúkrunar og dvalarheimilisins Skjólgarðs, vígði og blessaði séra Einar Jónsson á Kálfafellsstað garðinn og óskaði íbúum og dvalargestum Skjólgarðs til hamingju með þessa góðu aðstöðu til útiveru og bað þá vel að njóta.
Eftir vígsluna var gestum og aðstandendum boðið að skoða garðinn og því næst var öllum boðið í myndarlegt afmæliskaffi í boði Skjólgarðs.





Skrifa athugasemd