Nóvember
Úr myndasafni
Úr myndasafni

04.11.2004 Nóvember

Unglingar í Þrykkjustarfi

Núna eru unglingarnir í Þrykkjunni að undirbúa Hrekkjavökuna undir stjórn Sindra Ragnarssonar starfsmanns félagsmiðstöðvarinnar sem verður í kvöld, fimmtudagskvöld, í kjallara gamla vöruhússins við Hafnarbraut sem verið er að útbúa sem magnað draugahús. Á síðasta föstudag voru magnaðir rokktónleikar í Þrykkjunni þar sem fram komu fjóra rokksveitir sem rokkuðu við mikinn fögnuð unglingana. Í félagsmiðstöðin er íþróttaklúbbur sem hefur aðstöðu í íþróttahúsinu einu sinni í mánuði. Einnig eru starfandi fjölmiðla- tölvu-, og kvikmyndaklúbbar. Fjölmiðlaklúbburinn stefnir að því að gefa út blað sitt Þrykkjufréttir um miðjan þennan mánuði.

Þrykkjan er í Samfés, samtökum félagsmiðstöðva á Íslandi sem stendur fyrir mörgum viðburðum á landsvísu á hverju ári, þar sem m.a. er haldið úti ,,Útvarp Samfés? 2 ? 3 í viku. Þar er m.a. spurningakeppnin Viskan, sem er keppni milli félagsmiðstöðvanna.Lið Þrykkjunnar mætti þar til leiks í sl.viku segir Haukur H. Þorvaldsson æskulýðs- og tómstundafulltrúi, en liðið sem átti að keppa við okkur mætti ekki . Okkur var dæmdur vinningur út á það og er lið Þrykkjunnar komið í aðra umferð. Næsta keppni verður í þessum mánuði. Þrykkjan opin fyrir 8. -10. bekk þrisvar í viku og einu sinni í viku fyrir 6. 7. bekk.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica