Nóvember
Smyrlabjörg
Smyrlabjörg
Séð yfir Smyrlabjörg

05.11.2004 Nóvember

Uppskeruhátíð bænda í Austur–Skaftafellssýslu

Uppskeruhátíð bænda í Austur?Skaftafellssýslu verður haldin að Smyrlabjörgum á morgun laugardaginn 6. nóvember. Boðið verður upp á fordrykk, Risarækjuspjót á salatbeði í forrétt og hátíðar bóndasteik ásamt kartöflum, grænmeti og sósu. Að sögn framkvæmdarstjóra hátíðarinnar er ekki búið að ákveða hvaða bóndi verður steiktur í ár. Í eftirrétt verður boðið upp á sunnudagseftirrétt og að lokum kaffi, koníak og konfekt. Að vanda verður mikið um að vera á uppskeruhátíðinni og hver uppákoman á fætur annari. Veitt verða verðlaun fyrir bestu hrútana og að þessu verður veislustjóri Sveinbjörn Eyjólfsson forstöðumaður nautastöðvarinnar á Hvanneyri. Hljómsveitin Kusk mun svo sjá um að spila undir dansi.

Húsið opnar kl. 19:30 og hefst borðhald kl.20:30. Nú er bara að fjölmenna og eiga notalega kvöldstund á Smyrlabjörgum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica