Komnar í jólaskap og byrjaðar að undirbúa laufabrauðssöluna
Slysavarnakonurnar á Höfn eru komnar í jólaskap og farnar að undirbúa sína árlegu laufabrauðssölu sem þær eru með í byrjun aðventu. Undanfarin ár höfum við slysavarnakonur komið saman og skemmt okkur við að skera út laufabrauð og steikja, og selt það segir Eygló Illugadóttir. Við höfum venjulega verið svona 10-15 í hóp í tvö kvöld og steikt þúsund kökur. Við fórum strax að fá pantanir eftir að laufabrauðsauglýsingin kom á Skjávarpinu þó ekki sé enn komið verð á kökurnar. Eygló bjóst við að hægt væri að sinna pöntunum á sér-útskornum kökum ef það væri ekki því erfiðari skurður. Þessa dagana er Línan boðin til sölu en hún er eina af mörgum fjáröflunarleiðum þeirra slysavarnakvenna. Línan er happdrætti og er eigöngu seld hér í Austur-Skaftafellssýslu. Síðastliðin ár hafa slysavarnarkonurnar fært öllum 6 ára börnum í sýslunni endurskinsborða og á þessu ári færðu þær börnunum í 4. bekk lífsleikniefnið ,,Geimálfurinn" að gjöf. Einnig stendur til að gefa leikskólunum sýninguna ,,Númi og höfuðin sjö". Önnur föst verkefni eru kaffisala á sumardaginn fyrsta og fyrsta laugardag í maí standa þær fyrir hjóladegi þar sem skoðuð eru hjól og hjálmar og farið í gegnum hjólaþrautir.
Félagskonur í SVD Framtíðinni eru um 100 og fjölgaði um 10 á þessu ári. Deildin hélt upp á 50 ára afmælið í febrúar sl. Eygló segir að bæjarbúar séu duglegir að styrkja þær, og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Það er líka ýmislegt gert til gamans innan deildarinnar og í haust var farið í skemmtiferð austur í Fljótsdal og inn að Kárahnjúkum þar sem framkvæmdir voru skoðaðar. Í Desember höfum við ,, Stundina okkar" hittumst þá og gerum eitthvað skemmtilegt jólaföndur eða bara röbbum saman segir Eygló, afmælishóf verður í vetur og sitt hvað fleira, eins er stefnt á að hafa námsleið í austurlenskri matargerð.
Formaður deildarinnar er Hrefna Lúðvíksdóttir, Ingibjörg Ragnarsdóttir gjaldkeri og Eygló Illugadóttir ritari.




Skrifa athugasemd