Boðið upp á blóðsykurmælingar í Miðbæ
Sunnudaginn 14. nóvember næstkomandi er Alþjóðadagur sykursjúkra, af því tilefni bjóða Samtök sykursjúkra og Heilbrigðisstofnun Suðausturlands upp á blóðsykurmælingar í Miðbæ frá 13:00-14:30. Tilgangurinn er að vekja athygli fólks á sykursýki. Mæling á blóðsykri tekur aðeins hálfa mínútu og hvetjum við fólk til að koma í mælingu og fræðast í leiðinni. Sykursýki er í raun samnefni yfir tvær gerðir af sama sjúkdómi sem flokkast í týpu 1 og týpu 2. Þeir eiga ýmislegt sameiginlegt en eru þó mjög ólíkir. Týpa 1 er svokölluð barna- og unglingasykursýki eða insúlínháð sykursýki. Þessa tegund fær fólk yfirleitt á yngri árum og dregur nafn sitt af því. Ónæmiskerfið tekur upp á því að ráðast á brisið og eyðileggja þær frumur sem framleiða hormónið insúlín. Eftir það þarf sjúklingur að fá allt insúlín utanfrá með sprautum 2-5 sinnum á dag.
Týpa 1 er ólæknandi og ævilöng meðferð felst í að sprauta insúlíni undir húð, mæla blóðsykur 3-5 sinnum á sólarhring, borða reglulega og hreyfa sig.
Týpa 2 er svokölluð fullorðins sykursýki eða insúlínóháð sykursýki. Hún kemur oftast fram þegar fólk fer að eldast. Hæfni brisins til að framleiða insúlín minnkar eða hæfni líkamans til að nýta insúlínið minnkar. Meðferð er oftast með lyfjum í töfluformi, breyttum lífsstíl,svo sem bættu mataræði og skipulagðri hreyfingu. Stundum þarf einnig að gefa insúlín í sprautuformi.
Hægt er að lifa góðu lífi með sykursýki með því að vera samviskusamur í lyfjatöku, blóðsykurstjórnun og mataræði ásamt heilbrigðum lífsstíl, en sykursýki er sjúkdómur sem fylgir þér allan sólarhringinn alla ævi.
Talið er að talsverður fjöldi sé á hverjum tíma með ógreinda sykursýki týpu 2. Þetta er lúmskur sjúkdómur sem hægt er að bera árum saman án mikillar vanlíðunar, en á sama tíma er hann að valda skemmdum á hinum ýmsu líffærum. Nauðsynlegt er að greina sykursýki sem fyrst því ómeðhöndluð sykursýki endar bara á einn veg, illa.
Um 5.000 Íslendingar eru taldir hafa sykursýki, þar af eru um 10% eða 500 með týpu 1.





Skrifa athugasemd