Nóvember
Sólarlag við höfnina
Sólarlag við höfnina

15.11.2004 Nóvember

Góð mæting á málþing um eflingu atvinnulífsins

Á föstudaginn var haldið málþing um Nýheimum um eflingu atvinnulífsins á vegum Frumkvöðlaseturs Austurlands og atvinnumálefndar Hornafjarðar. Nokkuð góð mæting var á málþingið en á milli 40-50 manns létu sjá sig. Líflegar umræður sköpuðust um þau tækifæri sem eru hér í ferðaþjónustu, matvælaframleiðslu, uppbyggingu þekkingariðnar svo dæmi séu tekin. Efni málþingsins var að ræða hvort klasar gætu verið leið til að efla nýsköpun og framþróun í atvinnulífi í héraðinu. Í stuttu máli byggir klasi á því að margvíslegir aðilar, t.d. fyrirtæki og opinberar stofnanir, taka höndum saman um samvinnu og sérhæfingu í atvinnumálum. Klasinn sem er myndaður byggir á sérstöðu í atvinnuumhverfi þessara aðila og hefur þann tilgang að bæta samkeppnisstöðu þeirra.

Dr. Karl Benediktsson flutti afar áhugavert erindi um atvinnu- og byggðaþróun á Íslandi og lagði áherslu á að ekki væri nægjanlegt að styðjast eingöngu við hina gömlu sýn í byggðamálum sem gengi út á nýtingu náttúruauðlinda, vinnuafl og fjármagn heldur yrði einnig að byggja upp mannauð, styrkja félagsleg samskipti og tengsl milli fyrirtækja og einstaklinga og nýta sögu og menningu svæða í ríkari mæli. Hann taldi klasahugmyndina gæti vel hentað við hornfirskar aðstæður en áréttaði að oft væri stutt í úrtöluraddir og tortryggni gagnvart verkefninu gæti hamlað því að verkefnið næði ekki fram að ganga.

Karl Friðriksson, frá Iðntæknistofnun og Sævar Kristinsson, ráðgjafi, stýrðu hugmyndaflæðinu sem fór af stað á málþinginu og afraksturinn voru margvíslegar hugmyndir að nýsköpun í atvinnumálum. Niðurstaða málþingsins liggur fljótlega fyrir og í framhaldinu fer af stað vinna á vegum atvinnumálanefndar og frumkvöðlasetursins að eftirfylgni við þessar hugmyndir.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica