Afar ósáttir með hvernig staðið var að lagasetningunni
Skólahald í Hornafirði var með eðlilegum hætti í dag og flestir kennarar mættu til vinnu segir Árni Þorvaldsson kennari í Heppuskóla og formaður KSA. Menn eru bara afar ósáttir með hvernig staðið var að lagasetningunni og sérstaklega innihaldi hennar 3. gr. laga sem tekur samningsréttinn frá okkur segir Árni. Þó svo að það hafi verið eitthvað komið á móts við okkar tillögu undir það síðasta þá eru það bara eins og plástrar á sárin. Það er fyrst og fremst það sem menn eru óhressir með. Árni telur líklegt að einhverjar uppsagnir verði á meðal kennara á Austurlandi en í hversu miklum mæli þær verða er erfitt að spá um.
Í tilkynningu sem KSA sendi frá sér kemur fram að stjórn Kennarasambands Austurlands fordæmir vinnubrögð ríkisstjórnarinnar við gerð bráðabirgðalaga til að stöðva verkfall grunnskólakennara. Er engu líkara en að það sé einbeittur vilji ríkisstjórnarinnar að fá kennara ósátta og niðurbrotna inn í skólana. Þessi bráðabirgðalög binda hendur gerðardóms það rækilega að ekki er nokkur von um að kennarar fái laun í samræmi við menntun.
Stjórn Kennarasambands Austurlands hvetur samninganefnd launanefndar sveitarfélaga að ganga til samninga á grundvelli tilboðs FG sem lagt var fram þann 8. nóvember. KSA beinir einnig þeim tilmælum til kjörinna bæjarfulltrúa að kynna sér rækilega tilboðið og krefjast þess að samninganefnd launanefndar gangi til samninga á grundvelli þess. Með því væri hægt að stuðla að friði í skólastarfi.





Skrifa athugasemd