Bókun bæjarstjórnar vegna kjaradeilu
Á fundi Bæjarstjórnar Hornafjarðar í gær var samþykkt og bókuð eftirfarandi yfirlýsing: Bæjarstjórn Hornafjarðar lýsir yfir ánægju með að undirritaðir hafi verið samningur í kjaradeilu Kennarasambands Íslands og sveitarfélaganna.
Bæjarstjórn hvetur alla aðila að samþykkja samninginn og taka höndum saman um að ljúka þessu skólaári með velferð nemenda að leiðarljósi og sjá til þess að afleiðingar kjaradeilunnar bitni sem minnst á þeim.
Jafnframt lýsir bæjarstjórn yfir ánægju með framkomu kennara við grunnskóla sveitarfélagins en þeir hafa ekki raskað starfsemi skólanna í þessari viðkvæmu deilu eftir að lagasetning var samþykkt á alþingi.
Bæjarstjórn er tilbúin fyrir sitt leyti að skoða og ræða leiðir og tillögur sem skólastjórar og starfsfólk skólanna telja að geti bætt árangur í skólastarfinu á þessu skólaári og lýsir yfir fullum vilja til samstarfs m.a. um uppgjörsmál.





Skrifa athugasemd