Ætlunin er að leggja nýjan vegarkafla um 1.4 km
Á fundi Bæjarráðs Hornafjarðar í morgun lá fyrir beiðni um framkvæmdaleyfi við vegarstæði við Dynjanda í Nesjum. Ætlunin er að leggja nýjan vegarkafla um 1.4 km langan sem yrði framlenging á endurbyggingu vegarins að Almannaskarði. Mikil bót verður að þessari framkvæmd því blindbeyjan niður fyrir Krosshraunsklettinn verður löguð og einnig beyjan við heimreiðina að Dynjanda. Á fundi bæjarráðs lá einnig fyrir bréf frá Skipulagsstofnun þar sem óskað var eftir áliti hvort framkvæmdin væri háð umhverfismati. Eftirfarandi var bókað á fundi bæjarráðs:
Bæjarráð telur að ekki sé ástæða til mats á umhverfisáhrifum þar sem framkvæmdin hafi ekki umtalsverð umhverfisáhrif hvorki vegna eðlis né umfangs hennar. Þó telur bæjarráð rétt að bíða umsagnar annarra aðila um hvort framkvæmdin sé háð umhverfismati áður en framkvæmdaleyfi er veitt, sbr. bréf skipulagsstofnunar
Héraðsverk ehf. hefur að mestu lokið við undirbyggingu vegarins beggja megin Almannaskarðsganga þ.e neðra burðarlag er komið á mestan hluta vegarins.
Fyrstu undirstöður vegskálans við göngin að sunnanverðu verða steypt í dag og síðasta steypa í vegskála að norða verður væntanlega steypt á morgun. Í göngunum er unnið að uppsetningu vatnsklæðninga.





Skrifa athugasemd