Samkeppni um flottasta jólahúsið á Höfn
Það eru ófáir í sveitarfélaginu sem dunda við að skreyta húsin sín fyrir jólin með alls konar seríum, ljósaormum, stjörnum, álfum og ýmsu öðru sem gerir þau jólaleg. Eins og fram kom hér á vefnum þá er búist við að aukning verði á skreytingum í ár og margir nýir munu bætast við í hóp þeirra sem skreyta húsið sitt. Gísli Reynisson sem býr á Silfurbraut 31, en það hús var eitt fyrsta húsið á Höfn sem skreytt var og vakti mikla athygli, hefur skorað á Hornafjörð.is að standa fyrir samkeppni um best skreytta húsið í bænum og höfum við ákveðið að taka þeirri áskorun enda hugmyndin mjög góð.
Atkvæðagreiðsla um best skreytta húsið þessi jól/áramót mun fara fram hér á vefnum. Albert Eymundsson bæjarstjói mun síðan afhenda sigurvergaranum viðurkenningu fyrir best skreytta húsið jólin 2004. Búast má við harðri keppnin og enda er vitað um nokkra húseigendur sem hafa sett sér það að markmiði að gera betur en Gísli Reynis á Silfurbraut, Öddi á Hólabraut og Einar Björn á Kirkjubraut.
Hægt er að skrá sig í keppnina eða senda fyrirspurnir með því að senda póst á jolahus@hornafjordur.is





Skrifa athugasemd