Jóna Margrét opnar Hársnyrtistofu Ingibjargar.
Búið er að opna Hársnyrtistofu Ingibjargar aftur eftir nokkurt hlé. Jóna Margrét Jónsdóttir hársnyrtifræðingur hefur tekið aðstöðuna á leigu í eitt ár, til að byrja með. Jóna Margrét lauk hársnyrtinámi fyrir einu ári og hefur síðan unnið við hársnyrtingu í Reykjavík. ,,Ég er mjög fegin að vera komin heim aftur eftir fimm ára veru við nám og vinnu?, segir Jóna Margrét sem var byrjuð að taka á móti viðskiptavinum í gær þó ekki sé formlega opnað fyrr en kl.10 í dag. Þegar fréttamaður vefsins leit inn á hársnyrtistofuna í gær var Jóna Margrét og Ragnar Alfredson eiginmaður hennar, að taka upp hársnyrtivörur og skraut, töskur, ilmefni, olíur og margt fleira. Helstu vörumerkin sem hún býður uppá eru Wella hárvörur,Scbastian og Difi. Jóna Margrét ætlar að vinna ein á stofunni til að byrja með en segist þó vona að systir hennar komi þegar hún sé búin í skólanum á daginn og hjálpi sér.
Ragnar er Reykvíkingur og hefur alltaf átt þar heima.Hann segir að sér lítist vel á að flytja hingað til Hornafjarðar og ætlar á næstunni að byrja í byggingarvinnu.





Skrifa athugasemd