Desember
Innköllun á gölluðum flugeldum á Höfn
Björgunarfélag Hornafjarðar í samráði við Slysavarnafélagið Landsbjörgu hefur ákveðið að innkalla eina tegund flugelda vegna galla. Rakettan ber tegundarheitið Hnífur og er hluti af vopnabúrs vörulínu Flugeldamarkaða Björgunarsveitanna. Við öryggisprófanir flugeldasérfræðinga Slysavarnafélagsins Landsbjargar komu í ljós að hluti af rakettum sem skotið var upp virkuðu ekki sem skyldi og sprungu of neðarlega. Raketturnar voru teknar strax úr sölu í kjölfarið.
Um er að ræða 7 rakettur á Höfn og eru þeir sem hafa raketturnar undir höndum beðnir um að koma með hana út í flugeldasöluna sem er í húsi Björgunarfélags Hornafjarðar.





Skrifa athugasemd