Janúar
Sungið um hestamenn
Sungid_um_hestamenn
Sungið um hestamenn
Mynd 4 af 5
1 2 3 4 5

31.01.2005 Janúar

Þorrablót Nesja-og Lónmanna hafa verið haldin í 50 ár.

Þorrablót Nesja-og Lónmanna var haldið í Mánagarði í Nesjum í fimmtugasta sinn sl. laugardagskvöld. Um 200 manns sóttu blótið og þar á meðal þrír þeirra sem sáu um fyrsta þorrablótið fyrir 50 árum, það eru þau hjónin Ingólfur og Ingibjörg í Grænahrauni og Ásta Oddbergsdóttir frá Ási.
Valgerður Egilsdóttir, ein þeirra 19 sem voru í þorrablótsnefndinni 2005, segir að blótið hafi tekist alveg frábærlega vel og ekki annað að heyra en almenna ánægju blótsgesta. Þarna voru hefðbundin skemmtiatriði svo sem minni karla sem Kristín Benediktsdóttir flutti og Skarphéðinn Larssen talaði fyrir minni kvenna.
Kristín Benediktsdóttir var einnig með annál úr Lóni þar sem hún gerði mannlífinu þar, eins og það er í dag, góð skil. Annál fyrir Nesjasveit samdi nefndin og flutti. Vala sagði að þetta hafi verið léttur og skemmtilegur annáll þar sem efni hans var lesið, sungið og leikið og þar nutum við ómetanlegrar aðstoðar Jóhanns Moraveks. Við tókum þá fyrir sem eiga það skilið, sveitarstjórnina og þá sem eru áberandi í sveitarfélaginu. Það hefur vakið athygli að menn hafa verið að setjast að í sveitinni t.d. Ómar á Horni er kominn aftur á æskustöðvarnar, svo er ekki aldeilis ónýtt fyrir okkur að hafa fengið bæði kaupfélagsstjórann og forseta bæjarstjórnarinnar hingað í Nesin. Eins finnst okkur nú allt vera á uppleið hérna hjá okkur og heilmikill uppgangur t.d. fóru bændur héðan vestur á firði, af öllum stöðum á Íslandi, til að kynna sér nýjungar í mjólkurframleiðslu og svo eru menn alltaf að skoða þessa róbóta til að sjá um fjósverkin. Sitthvað fleira kom fram í annálnum.

Ég er óskaplega ánægð með hvað ballið var skemmtilegt segir Vala, og allir svo ánægðir enda var hljómsveitin okkar, Lifun, sem skipuð er strákum frá Stykkishólmi, alveg frábær og sló gjörsamlega í gegn. Hótel Höfn sá um matinn og það hefur aldrei verið svona góður matur á þorrablóti hjá okkur, þetta var svo vel útilátið, hreint frábært. Blótin sækir fólk af nær öllum bæjum í sveitinni og fyrrum Nesjamenn á Höfn eru duglegir að mæta, þetta er fólk á öllum aldri, sá elsti á þessu blóti var Ásta Oddbergsdóttir sem nýlega hélt upp á 90 ára afmæli sitt. Um næstu helgi ætlar þorrablótsnefndin að fara saman og skemmta sér á þorrablóti hjá Suðursveitungum.
Þorrablót eru stórkostlegur menningarviðburður sem við verðum að sjá vel um að haldist um ókomin ár segir Vala og að þau verði áfram í þeirri mynd sem verið hefur.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica