Nemendur Hrollaugsstaðaskóla gera sér alltaf glaðan dag á öskudaginn. Síðastliðin tvö ár hafa þeir farið á alla bæi í Suðursveit og sungið öskudagssöngva, síðan hefur verið haldið í Hrollaugsstaði ásamt foreldrum og slegið nammi úr tunnu, dansað og leikið sér. Að þessu sinni var ákveðið að halda austur á Mýrar og banka upp á á hverjum bæ þar í sveit. Allir klæddu sig í grímubúninga og lagt var af stað um hádegi. Gaman var að birtast óvænt, sungið var, Úti í bæ á öskudag, og haldið var í gamlan sið að hengja öskupoka á fólkið sem heimsótt var. ,, Þetta var mjög skemmtilegur dagur " sagði Þorbjörg, ,,nammið var í lágmarki en gleðin og ánægjan skein af hverju andliti og gaman að koma í hlað á bæjum þar sem börnin höfðu aldrei komið áður." ,,Kleinurnar hennar Helgu í Holtaseli brögðuðust sko vel og þjóðsagan um dranginn á Drangsnesi vakti eftirtekt." Síðan var farið í Hrollaugsstaði og slegið nammi úr tunnu og dansað. Séra Einar spilaði undir á píanóið, en hann er nýkominn frá Glasgov og Edinborg og mátti sjá það á búningnum hans. Allir skemmtu sér konunglega í ásadansi, fram fram fylkingu og skotbolta og sannaðist það nú sem fyrr að ,,lítið er ungs manns gaman" og mátti heyra að á heimleiðinni voru nemendur farnir að ræða hverja þeir ætluðu að heimsækja á öskudag á næsta ári. Væri ekki tilvalið fyrir fleiri skóla í sveitarfélaginu að hafa sama hátt á og þau á Hrollaugsstöðum?
Lesa meira