Eitt aðalmarkmið að fá fólk til starfa í stjórnum Sindra.
Aðalfundur Knattspyrnudeildar Sindra verður haldinn í Hafnarskóla í kvöld samhliða aðalfundi UMF Sindra. Í stjórn knattspyrnudeildarinnar eru þau Gestur Halldórsson, Jóhanna Stígsdóttir og Árni Rúnar Þorvaldsson. Annasamt ár er að baki og margt gert bæði í leikjum og starfi. Knattspyrnudeildin réði Gísla Örn Reynisson í fullt starf frá maí til september og var starf hans að sjá um vellina,vinnu við knattspyrnuskólann, leikjanámskeið o.fl. Í skýrslu stjórnar knattspyrnudeildar kemur fram að árið 2004 er 5. árið í röð sem deildin er rekin með hagnaði og er mikið kappsmál að svo verði áfram.
Tippstofan er stór liður í þeirri velgengni og halda verður vel um stjórntaumana og ekki slaka á í fjáröflun fyrir félagið. Æfingaaðstaða á Hornafirði hefur lagast mikið á tveim síðustu árum. Búið er að tyrfa vegagerðarlóðina og malarvöllinn og tengja þessi svæði saman. Keppnisvöllurinn bíður eftir fjármagni til að vera lagaður og verður það vonandi gert fljótlega því núverandi keppnisvöllur er löngu orðinn ónýtur og þarfnast upphækkunar og nýs grass. Sparkvöllurinn með gervigrasi varð að veruleika og er góð viðbót og í sumar verður skipt um gólfefni íþróttahúsinu.
Rekstrartekjur Knd. Sindra sl. ár voru kr. 27.620.015, rekstrargjöld kr. 22.603.302 og hagnaður kr.5.239.861. Lokaorð skýrslu stjórnar deildarinnar eru, að hvað sem öllum markmiðum sætir þá hlýtur það að vera eitt aðalmarkmið Hornfirðinga að fá fólk til starfa í stjórnum Sindra. Sjálfboðavinna er krefjandi, vanmetin og vanþakklátt verk eftir langan starfsdag. Eftir þennan aðalfund gengur Gestur Halldórsson úr stjórn og þakkar hann samstarfsfólki sínu gott samstarf og óskar Sindra velfarnaðar á komandi starfsárum.
Stjórn knattspyrnudeildarinnar þakkar öllum þeim sem starfað hafa og stutt deildina á einhvern hátt, en án þess góða stuðnings væri þetta ekki gerlegt.





Skrifa athugasemd