Mars
Jökulsá í Lóni, sólsetur
Jökulsá í Lóni, sólsetur
Fagurt sólsetur upp í lóni

04.03.2005 Mars

Innri friður – Innri styrkur.

Innri friður - innri styrkur er heiti á námskeiði sem haldið verður í Klifabotnum í Lóni helgina 8. -10. apríl og er eingöngu fyrir konur. Leiðbeinandi á námskeiðinu verður Bergþóra Reynisdóttir geðhjúkrunarfræðingur.
Helsta markmið námskeiðsins er:
Að byggja upp grunnundirstöðu í sjálfsþekking sjálfseflingu og samskiptahæfni sem
leiðir til innra öryggis og tilfinningalegs jafnvægis. Að viðhalda jákvæðum samskiptu
og leysa árekstra með lausnarmiðaðri sýn.
Áhersla er á jákvæða hugsun, slökun og ,,Lifðu Lífinu Lifandi?.
Efla sjálfsvitundina og auka innri styrk

- Efla samskiptahæfni Kynnast mætti fyrirgefningar og kærleikans í samskiptum
- Öðlast aukið sjálfstraust til að takast á við lífið á breyttum forsendum
- Kynnast áhrifamætti slökunar og njóta lífsins ,,Núna?
- Öðlast hugarró og innra jafnvægi

Fólk lærir að leita lausna á tilfinningalegu ójafnvægi sem oftast leiðir til ýmissa geðrænna einkenna. Með því að takast á við áðurgreinda grundvallarþætti andlegrar líðunar má koma í veg fyrir að t.d. þunglyndi og kvíði nái tökum á einstaklingnum.
.
Lögð verður áhersla á næringarríkan og ferskan mat, meðal annars grænmetisfæði og heimabökuð brauð. Að loknu námskeiði verður eftirfylgd x 1 í mánuði í 2 mánuði, þar sem hópurinn hittist og unnið verður áfram að uppbyggingu ,,Innra styrks?. Sá þáttur er innifalinn í verði (staður ekki ennþá ákveðinn). Hámarksfjöldi þátttakenda á námskeiðinu eru 10 konur. Kostnaður fyrir einstakling er kr.38.ooo. Verslunarmannafélag Reykjavíkur, Hafnarfjarðar, Selfoss, Hafnar og fl., Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga, Sjúkraliðafélag Íslands, Sjómanna og verkalýðsfélag Keflavíkur, verkalýðsfélagið Vökull á Höfn, ásamt fleiri stéttarfélögum veita félagsmönnum allt að 75% styrk til þátttöku á námskeiðinu. Þátttakendur fá skjal til staðfestingu á þátttöku sinni, sem eru alls 30 kennslustundir. Nánari upplýsingar eru í síma 8636669/5646669 og á vefsíðunni liljan@.isl.. Þátttakendur

Þátttakendur gista í húsum Vökuls í Klifabotni og þurfa að hafa rúmföt með sér, teppi, handklæði, náttslopp og inniskó, strigaskó/gönguskó, ullarsokka, húfu og vettlinga, bakpoka, þægileg bómullarföt inni og hlýjan yfirfatnað úti auk betri klæðnaðar á laugardagskvöldið. Klifabotnar í Lóni eru í um 20 mínútna akstursfjarlægð frá Höfn. Þar er friðsælt og fagurð umhverfi sem býður upp á útivist og gönguferðir um nágrennið.

Dagskrá námskeiðsins:

Föstudagur
Kl: 15:00-15:30 Kynning á dagskrá , þátttakendur kynna sig.
Kl: 15:30-16:30 Gönguferð
Kl: 16:30-17:30 Slakaðu á! Vertu til ;Núna?!
Kl: 17:30-18:00 Fortíðin kvödd
Kl: 18:00-19:00 Slökun og hvíld
Kl: 19:30-20:30 Kvöldverður

Laugardagur
Kl: 08:30-09:30 Morgunverður
Kl: 09:30-10:30 Gönguferð
Kl: 10:30-11:30 Gerðu það þín vegna
Kl: 11:30-12:30 Þegar allt fer úrskeiðis
Kl: 12:30-14:00 Treystu ,,Sjálfinu? þínu
Kl: 14:00-15:00 Hádegisverður
Kl: 15:00-16:30 Leystu hnútinn
Kl: 16:30-17:30 Hópastarf
Kl: 17:30-18:30 Svæðameðferð til sjálfshjálpar
Kl: 18:30-19:30 Slökun
Kl: 19:30-20:30 Kvöldverður
Kl: 21:00-23:00 Kvöldvaka

Sunnudagur 3. október
Kl: 09:00-10:00 Morgunverður
Kl: 10:00-11:00 Gönguferð
Kl: 11:00-12:00 Samskiptahæfni
Kl: 12:00-12:30 Hugarverkfæri í samskiptum
Kl: 12:30-13:30 Samskiptaþjálfun
Kl: 13:30-14:30 Hádegisverður
Kl: 14:30-15:30 Hópastarf
Kl: 15:30-16:00 Lokaorð þátttakenda
Kl: 16:00-17:00 Kaffi og námskeiðslok

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica