Sinueldur barst í útihús í Svínhólum
Eldur barst í gömul útihús á Svínhólum í Lóni í dag þegar bóndinn Ásgeir Júlíusson, var að brenna sinu á landareign sinni. Að sögn lögreglunnar er vesturendi útihúsanna ónýtur en Slökkviliði Hornafjarðar tókst að verja austur hluta þeirra. Slökkviliðið verður á staðnum fram eftir kvöldi. Húsið hefur verið notað sem skýli fyrir hesta og einnig sem geymsla. Húsið var óvátryggt. Lögreglan segir að með öllu sé óheimilt að brenna sinu nema fá leyfi og tilskilin vottorð yfirvalda til þess, en ekki er vitað hvort það var fyrir hendi í þessu tilfelli.
Á sama tíma og lögreglan fékk útkall vegna brunans varð umferðaróhapp skammt frá Höfn er ungur maður datt af mótorhjóli og rotaðist. Þegar maðurinn raknaði úr rotinu kenndi hann sér ekki neins meins og hélt ferð sinni áfram. Maðurinn var með hjálm og sagði lögreglan hjálminn hafa bjargað því að ekki fór verr..





Skrifa athugasemd