Styrktarveislan haldin í annað sinn, nú á Selfossi
Fréttatilkynning
Þann 26. mars næstkomandi verður haldin glæsileg styrktarveisla með það að markmiði að safna fé í þágu fatlaðra. Í fyrra var haldin samskonar veisla og var það þá í fyrsta skipti sem slíkt var gert. Nú í ár verður leikurinn endurtekinn enda tókst veislan, sem haldin var á Höfn í Hornafirði, með eindæmum vel. Í ár verður veislan á Selfossi, nánar tiltekið Hótel Selfossi. Það er mjög mikilvægt að þetta framtak fái athygli því málefnið er gott. Um er að ræða glæsilegan sjö rétta kvöldverð sem er matreiddur og framreiddur af fagfólki á eftir fordrykk og smáréttum. Verðinu er stillt mjög í hóf, aðeins 5.900 krónur á mann. Meðan snætt er mun hljóma ljúf píanótónlist, leikin af Guðlaugu Hestnes. Veislustjórn verður í höndum Svans Ingvarssonar, formanns Sjálfsbjargar á Suðurlandi, en hann leggur styrktarveislunni lið í ár og hefur unnið mikið með undirbúningshópnum.
Miðasala er þegar hafin en það er Íslandsbanki á Selfossi sem sér um miðasölu og hægt er að panta miða í síma 440-3042. Öll frjáls framlög í styrktarsjóðinn eru að sjálfsögðu vel þegin en reikningur sjóðsins er 586-26-860, kt. 421289-8679. Á vefsíðu styrktarveislunnar www.kokkur.is má finna ýmsar upplýsingar. Þar má sjá matseðilinn, fréttir af gangi mála, lista yfir styrktaraðila, myndir og margt fleira.
Allir sem koma að undirbúningi styrktarveislunnar gefa vinnu sína og fjölmörg fyrirtæki styrkja framtakið með vörum og þjónustu. Allt fé sem safnast, mun renna til málefna fatlaðra á Selfossi og nágrenni að þessu sinni. Meginmarkmið styrktarveislunnar er að stuðla að bættu aðgengi fatlaðra. Í fyrra var safnað fyrir lyftustól í sundlaugina á Höfn og það tókst. Nú er einnig meiningin að bæta aðgengi fatlaðra að sundlaug á Selfossi. Ábendingar um hvar úrbóta er þörf á aðgengi fatlaðra eru vel þegnar á netfangið betra-adgengi@kokkur.is.
Undirbúningur hefur gengið mjög vel og viðbrögð fyrirtækja hafa verið frábær. Listi styrktaraðila er langur og lengist í sífellu. Fjölmargir einstaklingar hafa einnig lagt sitt af mörkum við að gera styrktarveisluna að veruleika. Ætlunin er að hafa þetta árvissan viðburð og halda styrktarveisluna á nýjum stað hvert ár. Því er mikilvægt að vel takist til og biðjum við því um aðstoð fjölmiðla við að koma styrktarveislunni á framfæri og þar með þeim málefnum sem henni er ætlað að vekja athygli á.
Þeir sem vilja fá nánari upplýsingar um styrktarveisluna geta haft samband við Valgeir Ólafsson, 899-4430 eða Jón Sölva Ólafsson matreiðslumann, GSM: 847-5456. Netfang: veislan@kokkur.is




Skrifa athugasemd