Fermingar nálgast
Fréttir Hafnarkirkja
Ekki er ólíklegt að foreldrar víða séu önnum kafnir við að undirbúa fermingar enda nálgast þær óðfluga. Fjölmennustu fermingardagarnir eru pálmasunnudagur, skírdagur og hvítasunnudagur. Lætur nærri að 40 börn séu fermd á þessum dögum í Bjarnanesprestakalli. Fermingarfræðslan hefur gengið vel í vetur að sögn sr. Fjölnis, en börnin hafa að jafnaði mætt einu sinni í viku í fermingarfræðslutíma eftir skóla. Í kennslunni hefur verið stuðst við bókina Líf með Jesú og fræðst hefur verið um undirstöðuatriði kristinnar trúar en einnig hefur verið spjallað um heima og geima. Þorsteinn Haukur, fulltrúi Tollgæslunnar, kom í heimsókn til fermingarbarna og fjallaði um skaðsemi fíkniefna og var leitarhundurinn Bassi með í för.
Foreldrar mættu einnig á fundinn með Þorsteini og Bassa og var þétt setið í Hafnarkirkju. Hafnarsókn kann Tollgæslunni bestu þakkir.
Hér má nálgast lista yfir fermingarbörn





Skrifa athugasemd