Snædís keppir með íslenska landsliðinu á HM
Fyrrverandi þjálfari íshokkídeildarinnar á Hornafirði, Snædís Laufey Bjarnadóttir, er í íslenska landsliðinu sem heldur í keppnisferð á HM til Nýja-Sjálands 29.mars nk. Snædís hefur átt heima á Höfn í nokkur ár og sl. sumar þjálfaði hún strákana á Höfn í íshokkí. Það var rosalega gaman að þjálfa þessa stráka, segir Snædís, því þeir tóku svo miklum framförum yfir sumarið og voru virkilega áhugasamir, en nú hefur enginn þjálfari verið hjá þeim sem er mjög slæmt en vonandi rætist úr því. Snædís segist hafa byrjað í íshokkí fyrir fimm árum þegar hún var í fyrsta bekk framhaldsskóla Akureyri, þá stofnaði hún ásamt vinkonu sinni íshokkídeild kvenna á Akureyri. Hún hefur síðan sinnt íshokkíinu af miklum krafti og vinnur núna að stofnun íshokkí keppnisflokks í Reykjavík.
Snædís segir að þetta sé í fyrsta sinn sem landslið kvenna keppi fyrir hönd Íslands en áður hafa íslensk kvennalið keppt erlendis. Hún er nú ekki viss um stóran sigur á HM mótinu og segir að það sé ekki það sem skipti ekki öllu máli heldur að fá að vera með og taka þátt í mótinu.




Skrifa athugasemd