Mars
Óveður í Öræfum
Óveður í Öræfum
Á myndinni sést hvar grindverkið liggur mölbrotið hinum megin við sundlaugina (það hefur sem sagt mest allt fokið YFIR hana. (Mynd:Dóra Guðrún)
Mynd 1 af 5
1 2 3 4 5

26.03.2005 Mars

Niðurgrafinn pottur tókst á loft og hafnaði í sundlauginni

Mikið tjón varð á Svínafelli í Öræfum í ofsaveðri sem gekk þar yfir í síðustu viku. Í íbúðarhúsi Ólafs og Pálínu brotnaði ytra glerið í níu rúðum og við sundlaugina fauk skjólgirðing og annar heiti potturinn sem þar var innan girðingarinnar, hálf niðurgrafinn í jörðu, tókst á loft og hafnaði ofaní sundlauginni. Ólafur sagði að ekki væri búið að kanna hvort skemmdir hefðu orðið á sundlauginni en potturinn væri ónýtur, allur brotinn. Eitthvað brotnaði af rúðum í smáhýsunum sem eru stutt frá sundlauginni. Einnig brotnuðu fram og afturrúður í traktor í Austurbænum og þakplötur fuku af útihúsi.

Ólafur og Pálína voru erlendis þegar þetta óveður gekk yfir í Öræfum og komu ekki heim fyrr en sl. miðvikudag og sagðist Ólafur því ekki vera búinn að kanna skemmdir almennilega. Vindhraði þennan dag fór upp í tæpa 50 m. á sek. í Sandfelli en ökumaður sem var á ferð á brimdrekanum um sveitina undir kvöldið taldi að hvassara hefði verið við Svínafell en hjá Sandfelli.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica