Mars
Challander 604
Challander 604
Þotan að undirbúa sig til flugs
Mynd 1 af 9
1 2 3 4 5 6 7 8 9

28.03.2005 Mars

Ætla að koma aftur á einkaþotu til að skoða norðurljósin

Lítil einkaþota af gerðinni af gerðinni Challander 604 í lúxusútfærslu lenti á Hornafjarðarflugvelli í morgun og hafði þar viðdvöl meðan eigendur hennar, ensk hjón með þrjú börn ásamt íslenskum fararstjóra, skoðuðu sig um og fóru að Jökulsárlóni. Guðbrandur Jóhannsson fór með fjölskylduna að lóninu og sagði hann að það hefði verið mikill áhugi hjá þeim að fræðast um allt og mikið spurt um James Bond-kvikmyndunina. Ekki var hægt að fara í siglingu um lónið því þar hefur verið um meters þykkur ís en byrjað að flæða vatn yfir hann og ísinn er fljótur að fara. núna þegar Jökulsá er búin að ryðja sig eftir langa uppistöðu. Það var óskaplega fallegt við lónið í blíðunni í dag sagði Guðbrandur og fólkið greinilega ánægt með það sem það sá. Ekki var hægt að fara á Skálafellsjökul þar sem ekki er búið að opna veginn uppeftir.

Fólkið hafði farið á Mýrdalsjökul í gær, dorgað niður um ís, flogið norður fyrir Grímsey og 66 gráðurnar og fundið einn hafísjaka þar fyrir norðan. Síðan fóru þau frá Akureyri í Kverkfjöll og svo var flogið í björtu fögru veðri yfir jöklana til Hornafjarðar.

Fjölskyldan ætlar að koma aftur í sumar og líka um áramótin til að skoða norðurljósin og
örugglega er þessi ferð fjölskyldunnar góð vetrarauglýsing fyrir okkur.

Þegar þotan hélt frá Hornafjarðarflugvelli tók flugmaðurinn hring og flaug lágflug fyrir flugvöllun og vaggaði þotunni í kveðjuskyni.

Heimsóknir sem þessar yfir vetrartímann eru eitt af því sem stuðla þarf að og ekki síst með því að efla og bæta aðstöðuna á Hornafjarðarflugvelli svo að sem flestar gerðir flugvéla geti lent þar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica