Valinn úr hópi rúmlega fjörutíu umsækjenda
Gísli Sverrir Árnason fyrrverandi forstöðumaður Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar tók nýlega við starfi kynningarfulltrúa hjá Þjóðminjasafni Íslands og var hann valinn úr hópi rúmlega fjörutíu umsækjenda um starfið. Að sögn Gísla er starfið fjölbreytt og spennandi og felst meðal annars í umsjón með öllu kynningarefni sem gefið er út á vegum safnsins, samskiptum við fjölmiðla og ferðaþjónustu, umsjón með heimasíðu o.fl. "Starfið leggst mjög vel í mig" sagði Gísli Sverrir "og ég vænti þess að reynsla mín af starfi að menningarmálum á Hornafirði nýtist mér afar vel í nýja starfinum.
Gísli Sverrir biður kærlega að heilsa öllum eystra með þakklæti fyrir samstarfið.





Skrifa athugasemd