Apríl
Nemendu FAS leita að olíu
Nemendur FAS leita að olíu
(úr myndasafni) Nemendur FAS leita að olíu þegar nokkrir nemendur FAS tóku þátt í tölvuleiknum Xplore og kepptu þar við kollega sína frá Skotlandi, Danmörku, Noregi og Færeyjum.
Mynd 1 af 2
1 2

14.04.2005 Apríl

Vorhátíð FAS og Súperstar

Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu blæs til sóknar

Laugardaginn 16. apríl næstkomandi verður blásið til Vorhátíðar FAS á Hornafirði. Þar verður starfsemi Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu (FAS) kynnt með pompi og prakt. Átak hefur verið gert í kynningarmálum FAS undanfarið, nýju kynningarriti um skólann verður dreift á Vorhátíðinni og opnaður verður nýr vefur FAS á slóðinni www.fas.is. Vorhátíð FAS hefst kl. 15:00 og þangað er öllum nemendum tíunda bekkjar á Hornafirði, Djúpavogi og Kirkjubæjarklaustri, sérstaklega boðið í heimsókn ásamt foreldrum þeirra. Allir íbúar á Hornafirði og nágrenni eru auk þess boðnir velkomnir á hátíðina. Þar kynna skólameistari FAS og kennarar, fjölbreytta starfsemi skólans, bæði hvað varðar kennslu og félagslíf. Auk þess verða flutt atriði úr söngleiknum Jesus Christ Superstar og boðið upp á léttar veitingar.

Á Vorhátíð FAS verður undirritaður samningur um samstarf FAS við Fuglarannsóknarstöð Suðausturlands, sem nýverið var sett á laggirnar á Hornafirði, og samstarfssamningur við Menningarmiðstöð Hornafjarðar. Samstarf af þessu tagi fjölgar þeim möguleikum sem nemendum FAS býðst við skólann bæði við nám og tómstundir.

Á laugardagskvöld kl. 20:00 verður frumsýning á söngleiknum Jesus Christ Superstar í Mánagarði. Sýningin er samstarfsverkefni FAS, Leikfélags Hornafjarðar og Tónskóla Austur-Skaftafellssýslu. Sýningin er eitt fjölmargra verkefna sem nemendur FAS taka sér fyrir hendur utan hefðbundinnar vinnu við námið.

FAS er í hópi best búnu framhaldsskóla á landinu. Skólinn er í glæsilegu húsnæði Nýheima í miðbæ Hafnar í Hornafirði sem tekið var í notkun haustið 2002. Þar eru auk FAS, bókasafn og skjalasafn Menningarmiðstöðvar Hornafjarðar, Háskólasetrið á Hornafirði og Frumkvöðlasetur Austurlands. Þekkingarumhverfi Nýheima eflir starfsemi FAS og eykur námsframboð.

Í FAS er kennt á öllum þremur stúdentsbrautum, félagsfræðabraut, málabraut og náttúrufræðibraut, auk almennrar brautar og skipstjórnarnáms. Auk þess er í FAS lögð áhersla á fjölmiðlafræði, frumkvöðlafræði, heimspeki, landafræði, leiklist, náttúrufræði, spænsku, þýsku, tölvufræði og vinnustaðanám. Kennslustofur FAS eru sérlega vel útbúnar, með skjávörpum og myndfundabúnaði og nemendur hafa greiðan aðgang að fullkomnum tölvubúnaði við námið.

FAS hefur nokkra sérstöðu á meðal annarra framhaldsskóla hvað námsskipulag varðar og þar eru göt í stundatöflu og heimanám úrelt hugtök! Nám í FAS er skipulagt út frá vinnu nemenda en ekki kennslu þar sem hver þriggja eininga áfangi er metinn sem 100 klukkustunda vinna óháð fjölda kennslustunda. Miðað er við að nemendur ljúki sinni vinnu í skólanum og hafi frí um kvöld og helgar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica