Apríl
Nátthegri
Nátthegri
Myndasafn: Nátthegri (Nycticorax nycticorax) Jaðar í Suðursveit, 13. október 2004, @Björn Gísli Arnarson.

19.04.2005 Apríl

Búið að merkja 511 fugla í Einarslundi

Í dag var búið að merkja fimmhundruð og ellefu fugla í Einarslundi frá því merkingar hófust þar 24. mars á vegum Fuglaathugunarstöðvar Suðausturlands sem opnuð var á Höfn 14. mars sl. Þar voru merktir 502 skógarþrestir, hrossagaukar, músarindill, svartþröstur og hettusöngvari. Fuglarnir eru merktir með númeruðum fóthring úr áli. Fyrsta maríuerlan sást á Höfn í morgun og litlu seinna birtist steindepill. Margir bíða spenntir eftir að sjá fyrstu kríuna, sem væntanleg er á hverri stundu, og eru vissir um að með komu kríunnar sé vorið endanlega komið. Björn Arnarson segir að utan kríunnar séu einungis spóinn og þórshaninn ókomnir en þeir eru alltaf síðastir farfuglanna og koma venjulega einhvern tíma í maí.

Björn telur líklegt að hrafninn sé orpinn og stutt er í að álftir og gæsir verpi en þær eru venjulega fyrstu varpfuglarnir hér að krumma afrátöldum. Fjöldi farfugla virðist svipaður og verið hefur undanfarin ár og ekki hefur sést til neinna sjaldgæfra fugla hér í vor.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica