Firmakeppni við Stekkhól á laugardag.
Hestamannafélagið Hornfirðingur efnir til firmakeppni við Stekkhól á morgun,laugardag og hefst hún kl.14.00. Firmakeppnin er eina fjáröflunin sem félagið stendur fyrir og er leitað til allra félaga og stofnana á staðnum um styrk. Knapar draga síðan um hvaða félag eða stofnun þeir keppa fyrir og hefur knapinn frjálst val um hvað hann sýnir. Sigfús Þorsteinsson hestamaður segir að tölt sé vinsælasta valgreinin en svo er heilmikil fjölbreytni í þessu og börn og unglingar velja þá sýningu sem þau vilja og ráða best við. Keppt er í flokkum karla , kvenna, barna, unglinga og hugsanlega verður höfðingjaflokkur þar sem knapar yfir 50-60 ára aldrinum keppa.
Námskeið með kennslu í íþróttahestamennsku verður haldið dagana 5.-6. maí, kennari verður Hulda Gústafsdóttir. Ýmislegt fleira er á döfinni hjá Hornfirðingi því stefnt er á að halda hér opið íþróttamót 24.maí sem er fyrir allt austurland og um 20. júní verður félagsmót hestamanna við Stekkhól.
Sigfús segir að unnið sé af kappi við undirbúning fyrir byggingu reiðhallarinnar og rætist björtustu vonir manna þá verður byrjað að nota hana seinni hluta næsta veturs.Ekki er endanlega búið að ákveða stærð hússins en lámarksstærð er 20x 40 m. sem er lögleg stærð fyrir kennsluvöll. Þetta hús mun gjörbreyta allri aðstöðu hestamanna og ekki bara þeirra heldur á mörgum öðrum sviðum því þarna kemur aðstaða fyrir allskonar stórsýningar, kennslu-og keppnisaðstaða og ótal margt fleira sem hægt verður að nýta húsið í, segir Sigfús.





Skrifa athugasemd