Apríl
Heimir festir merki karlakórsins í jakka Ólafs
Heimir_festir_merki_karlakorsins_i_jakka_Olafs
Heimir festir merki karlakórsins í jakka Ólafs
Mynd 2 af 3
1 2 3

26.04.2005 Apríl

Tónleikar Karlakórsins frábærir

Vortónleikar Karlakórsins Jökuls um helgina tókust frábærlega vel og voru alls 194 tónleikagestir bæði kvöldin. Þetta er besta aðsókn ef frá eru taldir afmælistónleikar kórsins, segir Borgþór Freysteinsson, og undirtektir voru svo góðar að tónleikarnir á laugardagskvöldinu voru meira en hálftíma lengri en til stóð því alltaf var beðið um meiri söng.
Einsöngvari með kórnum var Ólafur Kjartan Sigurðsson baritón sem fór á kostum og töfraði áheyrendur með sinni stórkostlegu rödd, skemmtilegri framkomu og léttu gríni sem vakti mikinn hlátur. Borgþór segir að Ólafi hafi þótt gott að syngja fyrir Hornfirðinga og hefði mikinn áhuga á að koma hingað aftur og vera þá með meiri dagskrá. Að venju var söngur karlanna frábær og lagavalið skemmtilegt.

Karlakórinn leggur af stað í tónleikaferð til Siglufjarðar um hádegi á föstudaginn og verður með tónleika á Siglufirði á laugardaginn. Einsöngvari með kórnum þar verður Erlingur Arason fyrrum kórfélagi þeirra sem nú býr á Akureyri. Söngmenn verða 29 en alls verða 52 þátttakendur í ferðinni. Starfsári karlakórsins lýkur með tónleikunum á Siglufirði og sumarfrí tekur við en Borgþór segir þá tilbúna til að taka lagið við sérstök tilefni sé þess óskað.
Fréttamaður vefsins sendir karlakórnum, Guðlaugu, Jóhanni og Ólafi Kjartani bestu þakkir fyrir frábæra skemmtun.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica