Apríl
Höfn
Höfn
Höfn

27.04.2005 Apríl

Aðalskipulag sveitarfélagsins í endurskoðun.

Nú stendur yfir endurskoðun á aðalskipulagi í Sveitarfélaginu Hornafirði og er stefnt að því að tillögur þess verði tilbúnar nú í byrjun sumars. Íbúum sveitarfélagsins hefur borist bréf þar sem þeir eru vinsamlega beðnir að koma á framfæri við starfsmenn tækni-og umhverfissvið hafi þeir hug á einhverjum framkvæmdum. Þetta gætu verið framkvæmdir í sambandi við skógrækt, frístundabyggð eða aðra breyting á landnotkun í dreifbýli út frá núgildandi skipulagi. Einnig eru íbúar í þéttbýli hvattir til að koma sínum hugmyndum á framfæri.

Við sameiningu sveitarfélaganna í Austur- Skaftafellssýslu 1998 var ákveðið að fara í aðalskipulagsgerð fyrir allt sveitarfélagið, en þá var aðalskipulagsgerð fyrir Höfn og Lón nánast lokið. Það mun vera eitt stærsta skipulagssvæði sem tekið hefur verið til aðalskipulagsgerðar á þeim tíma. Gildandi aðalskipulag skiptir alla íbúa sveitarfélagsins máli enda snýst það um hvernig nánasta umhverfi þeirra er. Þess vegna er mikilvægt að íbúunum sé gefinn kostur á að fylgjast með skipulagsvinnu og koma með athugasemdir þegar þeim þykir tilefni til..
Vonast er til að aðalskipulagið muni á næstu árum vera gott tæki til að fylgja eftir góðri og vandaðri vinnu við þróun samfélagsins í sveitarfélaginu og jafnframt því að tekið sé tillit til sérstaks náttúrufars í héraðinu.
Skipulaginu er ætlað að vera umgjörð sem stuðlar að eflingu atvinnulífs, mannlífs og byggðar í sveitarfélaginu.
Tekið er mið af núverandi atvinnuháttum og byggðamynstri og skipulagsákvarðanir metnar á grundvelli heildarhagsmuna byggðarlagsins.
Stefnt er að aukinni fjölbreytni í atvinnulífi, bæði í þéttbýli og dreifbýli og að á Höfn verði öflugur þjónustukjarni í góðum tengslum við sveitirnar, þar sem landbúnaður og ferðaþjónusta verða stunduð og hafa eðlilega þróunarmöguleika.
Lögð eru drög að verndun og varðveislu landgæða og söguminja.
Allar nánari upplýsingar um þessi skipulagsmál er hægt að finna á hér á hornafjordur.is, Stjórnsýsla, aðalskipulag.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica