Maí
Kassaklifur
Kassaklifur
Hópurinn frá Höfn sem tók þátt í mótinu. Þau eru Urður María Sigurðardóttir, Anna Lind Þórhallsdóttir. Örn Þór Björnsson og Hólmar Hallur Unnsteinsson (Mynd BA)
Mynd 2 af 3
1 2 3

02.05.2005 Maí

Örn Þór Íslandsmeistari í kassaklifri

Íslandsmeistaramót í kassaklifri fór fram í KA heimilinu á Akureyri á laugardaginn. Keppt var í flokki drengja og stúlkna 13-15 ára og 16-18 ára. Sigurvegari mótsins og Íslandsmeistari varð Örn Þór Björnsson á Höfn sem náði 30 kössum í aldursflokki 16-18 ára, næsti var með 26 kassa. Þetta er í annað sinn sem keppt er í þessari íþróttagrein en fyrsta keppni Arnar Þórs því vegna veikinda gat hann ekki tekið þátt í keppninni í fyrra. Íslandsmeistarinn fékk medalíu, bækur og flíspeysu merkta ,,nýjasta jaðarsportið á klakanum". Aðstöðu til að iðka þessa nýju keppnisgrein hafa krakkarnir í íþróttahúsinu og trúlega verður þessi frábæri árangur Arnar Þórs til að vekja meiri áhuga á kassaklifrinu. Þeir krakkar sem kepptu frá Höfn auk Arnars Þórs voru Urður María Sigurðardóttir, Anna Lind Þórhallsdóttir og Hólmar Hallur Unnsteinsson.

 

Kassaklifur er samstarfsverkefni Bandalags íslenskra skáta og Slysavarnarfélagsins Landsbjargar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica