Maí
Hvannadalshnúkur
Hvannadalshnúkur
Hópurinn í 1000 metra hæð áður en haldið er inn á jökulinn
Mynd 2 af 2
1 2

12.05.2005 Maí

Héldu ró sinni og góða skapinu þrátt fyrir mjög kaldar og erfiðar aðstæður

Búast má við að um 100 manns haldi á Hvannadalshnúk um Hvítasunnuna

Aldrei hefur verið eins mikill áhugi á ferðum á Hvannadalshnúk og núna um Hvítasunnuna. Hjá ferðaaðilum sem standa fyrir þessum ferðum eru um eitthundrað manns búið að greiða staðfestingagjöld og svo er hópur leiðsögumanna þar að auki. Einar R. Sigurðsson fjallaleiðsögumaður í Hofsnesi fer með einn hóp og segir hann að reglan sé að hver atvinnuleiðsögumaður taki átta manna hóp í svona ferðir. Mikil nauðsyn er á að svona ferðir séu vel undirbúnar og fólk fari eftir leiðbeiningum um réttan búnað. Einar er nýkominn úr einum svona leiðangri er hann fór sl. þriðjudag ásamt Jökli Bergmann fjallaleiðsögumanni með tíu manna hóp og var ferðinni heitið á Hvannadalshnúk, vel leit út með veður og spáin var góð. Farið var upp Sandfellsleiðina sem er mjög þægileg leið og ekki mikill bratti fyrr en nálgast rætur Hnúksins. Þegar kom upp á jökulinn var kominn um hálfsmetra djúpur jafnfallinn snjór og þegar nálgaðist hlíðar Hvannadalshnúks var komið kolvitlaust veður 20-25 m. mikil snjókoma og skafrenningur.

Okkur miðaði þó ágætlega segir Einar, en þegar við komum upp undir á gígbarminn misstum við allt skyggni og þurftum að fara yfir nokkrar sprungur sem ég steig yfirleitt óvænt í, vegna þess að það var ómögulegt að sjá þær undir öllu nýsnævinu. Einar segir að nokkrum sinnum hafi fólk hreinlega fokið um og þegar nær kom hlíðinni fóru að heyrast óhugnanleg hljóð í snjónum í kring. Okkur varð ekki um sel og við stoppuðum áður en við komum of nálægt bröttum hlíðum Hvannadalshnúks og gerðum snjóflóðaprufu. Flekinn af nýja snjónum sem við skárum út lá á grjóthörðu lagi af eldri snjó og hann rann á stað í nánast engum bratta þegar hann var losaður.

Jökull sem er undanfarin ár búinn að vera í fjallaleiðsögumannanámi í Kanada og orðinn einn lærðasti snjóflóða (og fjallamennsku yfirleitt) sérfræðingur landsins mat hættuna á að flóð færi á stað undan okkur í bröttum hlíðum Hnúksins sem 5 á skalanum 1-5. Geysilega ofankoma og skafrenningur var og gífurlegt magn af snjó hafði safnast í austurhlíðar Hvannadalshnúks (og væntanlega í Hvannadalshrygginn líka). Vúúmp hljóðin gáfu til kynna að það væri komið mjög þungt farg af nýjum snjó yfir allt.

Einar segir að það hafi verið augljós ákvörðun að snúa við. Við héldum áfram að pompa í sprungur, 2 duttu aðeins í sprungur skammt fyrir neðan 1800 metra hæð á niðurleiðinni, enda voru aðstæður þannig að það var ekki nokkur leið að sjá hvar þær voru. Ekki varð neitt alvarlegt því allir voru mjög ábyrgir í línunni, að hafa ekki of mikinn slaka á milli sín.
Ég verð að segja að ég hefði ekki viljað hafa neinn annan en Jökul Bergmann mér til aðstoðar í þessari erfiðu ferð. Það eru forréttindi að fá að vinna með slíkum atvinnumanni í fjallamennsku. Einnig er ég mjög þakklátur fyrir hópinn frá Keldum. Þau voru frábær, héldu ró sinni og góða skapinu þrátt fyrir mjög kaldar og erfiðar aðstæður og auk þess höfðu þau verið mjög samviskusöm að útbúa sig eftir útbúnaðalistanum, sem ekki veitti af í þessari ferð. Ég held fram að ef einhverjir hefðu verið kærulausir og sleppt að taka með sér ýmislegt á þeim lista, þá hefði ofkæling bæst við þær hremmingar sem við áttum í höggi við.

Þessi ferð Einars og félaga sýnir að nauðsynlegt er fyrir þá sem huga að ferðalagi á jökulinn að fara eftir leiðbeiningum atvinnuleiðsögumanna sem manna best vita hvað þarf við þessar aðstæður. Einar segir að einstaklega mikil sprunguhætta sé á jöklinum núna og talsvert mikið komið af sprungum sem fennt hefur yfir og ekki nokkur leið að sjá. Hann segir flesta sækjast eftir að fara Virkisjökulsleiðina sem er erfiðust og við þessar aðstæður sem núna er mjög hættuleg þar er mikil snjóflóðashætta. Ef farið er með hópa þá leið verða leiðsögumenn að fara fyrst og kanna snjóalög því ekki er hægt að sjá það út fyrr en búið er að fara þangað upp. Á Sumardaginn fyrsta kom þar gríðarlega mikið snjóflóð og er það óhugnanlegt á að líta.

Einar vill vara þá við sem fara á snjósleðum og bílum upp á jökulinn að fara mjög varlega því þeir geta auðveldlega komið af stað snjóflóði.

 

Um Öræfaferðir.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica