Rekstrarleiga á björgunarbátum
Bátaeigendur á Hornafirði geta nú nýtt sér nýja þjónustu sem Ísfell er komið á stað með og
býður nú fyrst íslenskra fyrirtækja rekstrarleigu á björgunarbátum, en löng hefð er fyrir slíku í nágrannalöndum okkar. Í Bretlandi er það t.d. algengasta fyrirkomulagið að fyrirtæki leigi björgunarbáta en eigi þá ekki. Þýsku DSB björgunarbátarnir, sem Ísfell býður á leigu, hafa verið á íslenska markaðnum í fjölda ára, þeir eru mjög vandaðir og viðurkenndir af Siglingamálastofnun.
Björgunarbátar sem komir eru til ára sinna þurfa að ganga árlega í gegnum mjög kostnaðarsamar skoðanir. Slíka báta er í mörgum tilfellum hagkvæmara að taka strax úr notkun og taka í staðinn nýjan bát á rekstrarleigu. Sama gildir þegar þörf er á að kaupa nýja björgunarbáta, þar er rekstrarleigan mjög hagkvæmur valkostur.
Þegar björgunarbátur er tekinn á leigu hjá Ísfelli er engin útborgun, engin fjárbinding á leigutímanum eða lokakostnaður. Ekki er greitt fyrir árlegar skylduskoðanir, heldur er einfaldlega greitt fast mánaðargjald fyrir þjónustuna. Leigutími er 3-5 ár en því lengri sem leigusamningurinn er, því lægri er leigan. Í náinni framtíð kemur til greina að bjóða upp á enn styttri leigusamninga.
Þegar komið er að árlegri skoðun björgunarbáta sjá starfstöðvar Ísnets/Ísfells um móttöku þeirra en fyrirtækið er með starfstöðvar á níu stöðum víðsvegar um landið. Þegar bátur er afhentur til skoðunar móttekur leigutaki annan nýskoðaðan bát og losnar þannig við allar frátafir frá veiðum vegna biðtíma við skoðun.
Starfsfólk Ísfells væntir þess að útgerðarmenn sjá sér hag í þessari nýju þjónustu. Nánari upplýsingar veita sölumenn Ísfells í síma 550-8400.





Skrifa athugasemd