90 fyrirlestrar verða haldnir næstu þrjá daga
Í morgun var önnur alþjóðlega ráðstefnan um strandrannsóknir sett á Höfn. Að ráðstefnunni standa Hornafjarðarbær, Siglingastofnun Íslands, Háskóli Íslands og samgönguráðuneytið auk prófessors Per Bruun sem lengi hefur fylgst með mannvirkjagerð við strendur Íslands. Ritstjórar erlendu fagtímaritanna á sviði strandrannsókna, Journal of Coastal Research og Coastal Engineering, taka þátt í ráðstefnunni. Ráðstefnan er undir faglegri umsjón Siglingastofnunar Íslands. Um 125 þátttakendur frá 18 þjóðlöndum taka þátt á ráðstefnunni auk 30 maka. Ráðstefnuna setti Ari Þorsteinsson frá Frumu Hornafirði sem er aðal skipuleggjandi ráðstefnunnar á staðnum. Auk hans héldu erindi Ragnhildur Hjaltadóttir fyrir hönd samgönguráðherra, Halldóra Jónsdóttir formaður bæjarráðs Hornafjarðar og Hermann Guðjónsson forstjóri Siglingastofnunar. Síðan fluttu nemendur tónlistarskóla Hornafjarðar nokkur lög.
Um 90 fyrirlestrar verða haldnir næstu þrjá daga um gerð og stöðugleika sjávarstranda, hönnun brimvarna- og sjóvarnagarða, sjávarfallaósa og sjávarfallaspár, öldu og brotölduspár og um öryggi sjófarenda einkum er varðar stöðugleika og siglingar skipa í hættulegum öldum. Auk fyrirlestrahalds verður siglt um Hornafjarðarós, sjávarútvegsfyrirtækið Skinney/Þinganes heimsótt og Jökulsárlón skoðað. Heimamenn hafa staðið vel að öllum undirbúningi og aðstaðan í Nýheimum, frumkvöðlasetri Austurlands, til fyrirmyndar.





Skrifa athugasemd