Júní
Uppgröftur
Uppgröftur
Uppgröftur í Öræfum (@BA)
Mynd 1 af 3
1 2 3

07.06.2005 Júní

Vinnu við uppgröft húsarústanna í Bæ í Öræfum haldið áfram

Fornleifafélag Öræfa fékk á þessu ári eina milljón og eitthundrað þúsund kr. styrk til að halda áfram vinnu við uppgröft húsarústanna í Bæ í Öræfum. Seinni hluta maí var svo farið að grafa og hreinsa í rústunum. Að staðaldri voru þarna 12 manns við uppgröftinn, Bjarni Einarsson fornleifafræðingur stjórnandi verksins, einn fornleifafræðingur og átta fornleifanemar úr Háskólanum ásamt þeim Birni Arnarsyni safnverði á Höfn og Hálfdáni Björnssyni á Kvískerjum. Björn segir uppgröftinn hafa gengið mjög vel og veðrið verið sérlega hagstætt alla dagana. Þegar búið var að ýta moldarlaginu burt með jarðýtu voru hjólbörur notaðar til að keyra vikrinum burt en þarna eru tóftirnar fullar af hreinum vikri. Það er þægilegt að eiga við vikurinn nema þegar hvasst er því þá fer hann að rjúka.

Við fórum niður á gólf í einni tóftinni sem er hringlaga og hugsanlega hefur þar verið lýsishús þar sem lýsi hefur verið brætt, en tvær litlar þrær og rennur liggja út úr því. Bær er talinn hafa eyðst þegar Öræfajökull gaus 1362. Engir munir hafa fundist og segir Björn það geta bent til að ábúendur hafi haft nægan tíma til að bjarga eigum sínum en það ætti að koma í ljós þegar farið verður að grafa upp í íbúðarhúsinu sem vonandi verður byrjað á í haust en það fer allt eftir því hvernig gengur að fá fjármagn.

Þetta er sérstaklega vel hlaðinn húsgrunnur og hefur varðveist mjög vel í vikrinum og segir Björn auðséð að þeir sem þarna voru að verki hafa kunnað vel til verka. Sumir hafa velt því fyrir sér hvort þetta muni vera bærinn Salthöfði af því þessar rústir eru rétt hjá Salthöfða og lítur út fyrir að hafa verið meðalstórt býli. Bæjar-rústirnar verða opnar fram eftir sumri og geta þeir sem áhuga hafa, farið og skoðað þær og er þá farið niður fyrir Fagurhólsmýri eftir gamla flugvallarveginum austur að klettunum og þaðan gengið smáspöl að rústunum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica