Sundlaugin lokar tímabundið vegna bilunar
Sundlaug Hafnar er nú lokuð tímabundið vegna skemmdar í dúk sem klæðir laugina. Að sögn Lars Jóhanns Andréssonar sundlaugarvarðar þá er dúkurinn sem er kominn til sinna ára hefur þurft nokkuð viðhald og þegar gat kemur á hann þá lekur vatnið á bak við dúkinn og er það nokkuð mál að hreinsa vatnið þar og gera við gatið. Búast má við að sundlaugin verði lokuð í nokkra daga á meðan unnið er að viðgerð á dúknum. Daglega koma um 80 til 90 manns í laugina og fer sú tala hækkandi þar á sumarið líður. Svo eru að sjálfsögðu fastagestirnir sem mæta á hverjum morgni. Sundnámskeið fyrir 5 og 6 ára krakka sem er að fara af stað verður haldið þar sem kennslan fer fram í krakkalauginni.
Opnunartími verður auglýstur nánar síðar.





Skrifa athugasemd