Júní
Frá kvennahlaupinu 2004
Frá kvennahlaupinu 2004
(úr myndasafni)

10.06.2005 Júní

Kvennahlaupið á laugardag

Kvennahlaupið hefst frá Sporthöllinni á morgun laugardag kl.11. Þetta er 16 árið sem Kvennahlaup ÍSÍ fer fram og eru Sjóvá-Almennar aðalstyrktaraðili hlaupsins. Eins og undanfarin ár þá er búist við mjög góðri þátttöku í hlaupinu hér í Sveitarfélaginu. Það er ekki endilega heimamenn sem hafa skráð sig í hlaupið segir Svafa Mjöll Jónasar hjá Sporthöllinni, það er eins og á síðasta ári, margir aðkomumenn sem hafa skráð sig sem eru bæði fólk á ferðalagi og þeir sem eru í heimsókn hjá ættingjum hér á staðnum. Hægt er að velja um þrjár hlaupaleiðir og er hlaupið fyrir alla aldursflokka. Hlaupaleiðirnar sem verða merktar fyrir hlauparana eru 2,5, 5 km og 7 km. allt innanbæjar. Til að hafa smá tilbreyngu frá því í fyrra er búið að búa til nýjar hlaupaleiðir. Þeir sem ekki hafa skráð sig er bent á að gera það í dag í Sporthöllinni sem er opin til kl. 19 í kvöld eða í fyrramálið frá kl. 9.

Þátttökugjald er 1000 krónur og fá þátttakenndur bol eins og undanfarin ár. Boðið verður upp á Egils kristal og svo fá allir frítt í sund eftir hlaupið.

Sjá myndasafn Kvennahlaup 2004

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica